Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Stjórnunar- & verndaráætlanir

Stjórnunar- og verndaráætlanir fyrir náttúruverndarsvæði og villt dýr og fugla eru stefnumótandi skjöl. Þau lýsa framtíðarsýn og grundvallarsjónarmiðum sem höfð eru til hliðsjónar um hvernig eigi að viðhalda og auka verndargildi.

Friðlýst svæði

Í stjórnunar- og verndaráætlununum friðlýstra svæða er meðal annars fjallað um landnýtingu, landvörslu, vöktun, uppbyggingu, fræðslu og miðlun upplýsinga, verndaraðgerðir og aðgengi ferðamanna. Lögð er fram aðgerðaáætlun til þriggja ára þar sem aðgerðum er forgangsraðað og þær skilgreindar.

Villt dýr og fuglar

Stjórnunar- og verndaráætlanir fyrir villt dýr og fugla byggja á lögum um vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Áætlunin er stjórntæki þar sem lögð er fram stefnumótun til næstu ára ásamt aðgerðum til að viðhalda lífvænlegum stofni tegundarinnar.