Þegar umsókn um innflutningsleyfi fyrir lifandi framandi lífveru berst Náttúruverndarstofnun skal stofnunin samkvæmt 63. grein laga um náttúruvernd leita umsagnar sérfræðinganefndar um framandi lífverur. Umsóknir eru ekki sendar til umsagnar fyrr en umsóknargjald hefur verið greitt.
Fylgigögn með umsóknum
Áhættumat skal ávallt fylgja umsóknum samanber 63. grein náttúruverndarlaga. Umsækjanda er jafnframt heimilt að senda öll önnur viðeigandi gögn með umsókninni, svo sem heilbrigðisvottorð, upprunavottorð eða önnur gögn sem hjálpa við mat á því hvort að innflutningur eða dreifing lífverunnar sé til þess fallinn að ógna eða hafa veruleg áhrif á líffræðilega fjölbreytni.
Innflutningsleyfi á grundvelli annarra laga
Vakin er athygli á því að þegar fluttar eru inn framandi lífverur er í sumum tilfellum nauðsynlegt að afla tvenns konar leyfa vegna innflutnings dýra og plantna. Þannig veitir sá ráðherra sem fer með lög um innflutning dýra undanþágur frá innflutningsbanni 2. greinar þeirra laga og yfirdýralæknir getur vikið frá innflutningsbanni laganna og leyfi innflutning á gæludýrum og erfðaefni þeirra sem ekki teljast til nýrra dýrategunda eða erlendra stofna tegunda sem hér eru fyrir - um þetta leyfi er sótt hjá Matvælastofnun. Séu þessar tegundir framandi þarf jafnframt leyfi Náttúruverndarstofnunar til innflutningsins. Nánar upplýsingar um hvaða tegundir teljast framandi lífverur má nálgast hér.
Um sérfræðinganefnd um framandi lífverur
Ráðherra skipar til fjögurra ára í senn sex manna nefnd sérfræðinga sem skal vera stjórnvöldum til ráðgjafar um innflutning og ræktun framandi tegunda og dreifingu lifandi lífvera. Náttúrufræðistofnun, Landbúnaðarháskóli Íslands, Líf- og umhverfisvísindastofnunn Háskóla Íslands og Hafrannsóknarstofnun tilnefna einn fulltrúa hver og Land og skógur tilefna einn fulltrúa.
Kærur til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Náttúruverndarstofnun vekur athygli á því að ákvarðanir eru kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála samanber 91. grein laga um náttúruvernd. Um aðild, kærufrest, málsferð og annað sem varðar kæruna fer samvæmt lögum um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina samanber 2. málsgrein 4. greinar laganna.
