Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Landvarðanámskeið Náttúruverndarstofnunar 2026

Vilt þú verða landvörður?

Náttúruverndarstofnun auglýsir landvarðanámskeið 2026. Þátttaka í námskeiðinu veitir réttindi til að starfa sem landvörður. Menntaðir landverðir ganga alla jafna fyrir við ráðningar í störf.

Námskeiðið er 110 klst. og eru megin umfjöllunarefnin eftirfarandi;

  •          Landverðir, helstu störf
  •          Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála
  •          Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
  •          Gestir friðlýstra svæða
  •          Mannleg samskipti
  •          Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar
  •          Vinnustaðir landvarða
  •         Öryggisfræðsla

Námskeiðið hefst 29. janúar og lýkur 1. mars. Kennt er um helgar milli klukkan 9 og 14 og á fimmtudags- og föstudagskvöldum frá kl. 17. Gert er ráð fyrir töluverðri heimavinnu til viðbótar við mætingarskyldu á fyrirlestra og umræðufundi. Fyrirlestrar verða teknir upp og hægt að horfa á utan hefðbundins kennslutíma.

Námskeiðið er fjarkennt á Learncove þrjár helgar en ein staðlota verður í náminu og stendur hún frá miðvikudegi og fram á sunnudag. Sú lota er vettvangsferð haldin úti á landi og er skyldumæting í hana. Námskeiðið er kennt á íslensku og þurfa nemendur að vera færir að taka þátt í verkefnum á íslensku, bæði í ræðu og riti.

Námskeiðsgjaldið 2026 er kr. 170.000,- og er allur kostnaður við vettvangsferðina innifalin í því verði.

Nánari upplýsingar og skráning

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Náttúruverndarstofnunar og fer skráning jafnframt fram þar. Skráning hefst 2. janúar klukkan 10:00 og stendur til 7. janúar 2026.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Ósk Jónasdóttir hjá Náttúruverndarstofnun, kristin.o.jonasdottir@nattura.is