Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Landvarðanámskeið

Landvarðarnámskeið Náttúruverndarstofnunar verður auglýst fljótlega. Námskeiðið er kennt í fjarnámi, fyrir utan eina staðlotu sem jafnframt er vettvangsferð.

Landvörður fræðsluganga Holuhraun

Markmið

Markmið námskeiðsins er að tryggja framboð af hæfum landvörðum til starfa á friðlýstum svæðum. Kennt er samkvæmt námskrá Náttúruverndarstofnunar og reglugerðar um landverði númer 190/2019.

Náttúruverndarstofnun hefur yfirumsjón með námskeiðinu en kennarar koma jafnframt víðar að.Námskeiðið spannar 110 kennslustundir sem raðast niður á 5 vikur á tímabilinu 30. janúar til  2. mars 2025. Nemendur velja á milli tveggja helga sem staðlotu en frí er þá helgi sem ekki verður valin. 

Nemendur sem ljúka landvarðarnámskeiði ganga fyrir um landvarðastörf í þjóðgörðum og öðrum friðlýstum svæðum.

Kristín Ósk Jónasdóttir, sérfræðingur hjá Náttúruverndarstofnun, hefur umsjón með námskeiðinu,  sér um skipulagningu, undirbúning og fleira ásamt kennurum sem koma að helstu þáttum námskeiðsins.

Starf að námi loknu

Allmargir landverðir eru ráðnir til starfa á friðlýstum svæðum ár hvert. Þeir sem ljúka landvarðarnámskeiði öðlast rétt til að starfa sem landverðir og ganga þeir fyrir við ráðningar í störf landvarða. Eftirspurn eftir landvörðum og framboð reyndra landvarða ræður mestu um hve margir nýútskrifaðir fá vinnu. Námskeiðið er því ekki trygging þess að hljóta vinnu á friðlýstum svæðum en möguleikarnir eru mun meiri.

Umfjöllunarefni

Aðal umfjöllunarefni námskeiðsins eru: 

  • Helstu störf landvarða
  • Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála
  • Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
  • Gestir friðlýstra svæða
  • Mannleg samskipti
  • Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar
  • Náttúruvernd, verkfærin okkar
  • Vinnustaður landvarða
  • Öryggisfræðsla

Staðsetning námskeiðs

Námskeiðið fer allt fram á námsvef. Þar munu fyrirlestrar, vinnustofur og umræður fara fram og jafnframt munu öll námsgögn verða þar að finna. 

Námskeiðið byggir á fyrirlestrum á vef ásamt umræðum í litlum hópum og heimaverkefnum. Heimaverkefni geta verið allt frá 15 mín og upp í nokkra klukkutíma í vinnslu.

Nemendur

Nemendum af öllu landinu gefst kostur á að taka þátt.  Lágmarksfjöldi þátttakenda til þess að námskeið verði haldið er 25 og hámarksfjöldi 72. 

Fólk með áhuga á útivist, náttúru og náttúruvernd er hvatt til að sækja um námskeiðið. Mikilvægt er að landverðir búi að góðri samskiptahæfni og hafi ánægju af að vinna með fólki.

Leiðbeinendur, val og reynsla

Leiðbeinendur eru reynslumiklir starfsmenn og landverðir, jafnt Náttúruverndarstofnunar sem annarra stofnana.

Lögð er áhersla á leiðbeinendur með víðtæka reynslu og þekkingu á starfsemi verndarsvæða og störfum landvarða. Margir þeirra hafa kennt árum saman á landvarðarnámskeiðum.

Mat á frammistöðu nemenda

Nemendur taka þátt í öllum hópverkefnum sem lögð verða fyrir. Þar með töldum umræðuverkefnum. Jafnframt skila allir nemendur vinnubók með öllum þeim verkefnum sem verða lögð fyrir á námskeiðinu. Standast þarf mat til að útskrifast.

Hér skal tekið fram að námskeiðið er kennt á íslensku og þurfa nemendur að vera færir um að skila verkefnum á íslensku bæði í ræðu og riti.

Skráning

Opnað verður fyrir umsóknir í janúar 2026.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um námskeiðið veitir Kristín Ósk Jónasdóttir í síma 55 66 800 eða á netfanginu kristin.o.jonasdottir@nattura.is.