Móttaka og fræðsla
Landverðir taka á móti gestum og veita þeim nauðsynlegar upplýsingar um náttúru, staðhætti og sögu svæðanna, tjaldsvæði, gönguleiðir, akvegi og nánast hvað annað er gestir vilja vita. Á nokkrum svæðum er gestastofa og skrifstofa þar sem gestir geta gengið að landvörðum vísum til að fá upplýsingar og aðstoð. Þáttur í starfi sumra landvarða er að sjá um rekstur tjaldsvæða og fjallaskála.
Náttúrutúlkun
Landverðir bjóða gestum upp á náttúrutúlkun. Náttúrutúlkun er sérstakt form fræðslu til að auka ánægju, upplifun og áhuga gesta á umhverfinu. Markmið náttúrutúlkunar er að auka skilning fólks á náttúrunni og vekja með því virðingu fyrir henni með það fyrir augum að þekking leiði til virðingar og virðingin til verndunar. Náttúrutúlkun er beitt í styttri sem lengri gönguferðum, barnastundum, fyrirlestrum, gestastofum og í óformlegu spjalli við gesti hvar sem tækifæri gefst.
Náttúruvernd og eftirlit
Landverðir gæta þess að ákvæði friðlýsingar og náttúruverndarlaga séu virt. Þeir fylgjast með því að réttur náttúrunnar sé virtur, meðal annars með því að hafa eftirlit með umferð og umgengni fólks. Landverðir sjá um að merkja göngustíga, leggja nýja og halda þeim við. Á þann hátt opna þeir svæðin fyrir umferð gangandi gesta en búa jafnframt þannig um að náttúran hljóti sem minnstan skaða af.
Alltaf til taks!
Gestir geta leitað til landvarða hvenær sem þörf krefur. Á náttúruverndarsvæðum eru landverðir oft eina staðkunnuga fólkið sem hægt er að leita til í neyðartilfellum og þá reynir á áræðni þeirra og útsjónarsemi, stundum við erfiðar aðstæður.
Menntun
Til að fá réttindi sem landvörður þarf fólk að ljúka sérstöku námskeiði í náttúruvernd og landvörslu sem Náttúruverndarstofnun og nokkrir aðrir aðilar standa að. Landvarðanámskeið eru að haldin í febrúar ár hvert. Þátttakendur þurfa að vera að minnsta kosti 18 ára.
