Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Hvað gera sjálfboðaliðar?

Sjálfboðaliðastarf í þágu náttúruverndar byggir á hugsjónum þeirra sem taka þátt í starfinu. Markmiðið er að verkefnin stuðli að náttúruvernd á friðlystum svæðum og nýtist gestum sem sækja svæðin heim en stuðli ekki að efnahagslegum hagsbótum fyrir einstaklinga eða fyrirtæki.

Sjálfboðaliðar á Snæfellsnesi

Sjálfboðaliðastarf í þágu náttúruverndar þekkist víða um heim. Án aðstoðar frá sjálfboðaliðum myndu markmið um náttúruvernd ekki nást á mörgum svæðum, þeir sinna verklegri vinnu og búa yfir mikilli þekkingu sem þeir afla sér og miðla öðrum. Sjálfboðaliðar sinna oft verkefnum sem annars yrðu ekki unnin. Europarc Federation hefur látið útbúa viðmiðunarreglur um gæðastjórnun sjálfboðaliðastarfs á friðlýstum svæðum í Evrópu, og er lýsing á afmörkun sjálfboðaliðastarfs hjá Náttúruverndarstofnun í samræmi við þær reglur.

Sjálfboðaliðar sinna aldrei launuðum störfum og verktakatækum störfum, og öll verkefni sjálfboðaliða í náttúruvernd eru verkefni sem væru ekki unnin ef ekki væri fyrir sjálfboðaliðana. Vinnan er nær einvörðungu unnin með handverkfærum. Verkefnin eru yfirleitt staðsett á svæðum sem eru úr alfaraleið og því getur reynst erfitt að fá fólk í vinnu á slíkum svæðum.

Verkefni sjálfboðaliða Náttúruverndarstofnunar veita þeim faglega þekkingu í verndun náttúru og í stýringu gesta á náttúruverndarsvæðum. Meðal sjálfboðaliða hjá Náttúruverndarstofnun eru því oft einstaklingar í starfsnámi eða „internship“, sem nýtist þeirra námsferli og þau hljóta styrk frá sínum háskóla til þess að vinna í sjálfboðaliðastarfi. Með þessu móti uppfyllir Náttúruverndarstofnun einnig ákvæði um fræðslu sem kemur fram í náttúruverndalögum.

Verkefni sjálfboðaliðanna í náttúruvernd og vistheimt eru mörg og má þar nefna: 

  • Afmörkun, viðhald og lagning náttúruleg gönguleiða í óbyggðum.
  • Endurheimt landslags og víðernis, loka villustígum, raka yfir hjólför vegna aksturs utan vega.
    Landmótun, laga göngustíga svo þeir falli betur inn í landslagið, mosaflutning.
  • Líffræðileg fjölbreytni, uppræting ágengra plöntutegunda.
  • Endurreisn gamalla varða með umsjón sérfræðings frá Minjastofnun.
  • Hreinsun náttúrulegra og ósnortinna svæða.
  • Aðstoða við starfsemi í þjóðgörðum eins og til dæmis úttekt á ástandi náttúrulegra gönguleiða.
  • Vöktun gesta á náttúruverndarsvæðum og vöktun lífríkis.
  • Ýmis konar fræðslu og náttúrutúlkun um náttúruna og umhverfi.
  • Kynning og þjálfun en sjálfboðaliðar með mikla reynslu fræða nýja sjálfboðaliða og koma þekkingunni þannig áfram til dæmis um liðstjórn.

Upplýsingar um sjálfboðaliðastarf á ensku