Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Tungufoss

Tungufoss er fallegur foss neðarlega í Köldukvísl í Mosfellsbæ, á móts við Leirvogstungu og dregur fossinn nafn sitt af bæjarnafninu. 

Á svæðinu í kringum Tungufoss er til dæmis að finna graslendi, mólendi, mela og sandlendi ásamt alaskalúpínu. Skógrækt er á nálægum svæðum en engin innan friðlýsta svæðisins

Við Tungufoss má sjá leifar af heimarafstöð sem var reist árið 1930 af bóndanum í Leirvogstungu og bræðrum hans og framleiddi stöðin rafmagn fyrir bæinn fram til ársins 1958. Tveir fallegir hylir eru neðan við Tungufoss: Kerið, sem er beint fyrir neðan fossinn, og Klapparhylur litlu neðar. Nærsvæði fossins er vinsælt til útivistar en hið friðlýsta svæði er 1,4 hektarar að stærð.

Friðlýsing

Tungufoss var friðlýstur sem náttúruvætti árið 2013. Markmiðið með friðlýsingu Tungufoss sem náttúruvættis er að vernda fossinn sjálfan sem og menningarminjar innan þess. Svæðið hefur mikið útivistargildi enda fjölsótt bæði af bæjarbúum og öðrum gestum og mikilvægt að treysta útivistar- og fræðslugildi þess.