Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Lundey í Kollafirði

 Lundey er í innanverðum Kollafirði milli Geldinganess og Brimness á Kjalarnesi. 

Eyjan er um 400 metra löng og um 150 metra breið þar sem hún er breiðust. Hún er lægst að austanverðu en hækkar til vesturs og er um 14 m.y.s. þar sem hún er hæst. Eyjan er að mestu úr grágrýti, algróin og stórþýfð.

Verndargildi Lundeyjar felst fyrst og fremst í stórri sjófuglabyggð, einkum lundabyggð sem a.m.k. stundum getur talist alþjóðlega mikilvæg með yfir 10 þúsund pör. Þá eru allir algengustu varpfuglar eyjarinnar á válista, lundi, rita, æður og teista. Í Lundey er einnig að finna sérstætt gróðurlendi, gulstör í bland við haugarfa.

Fræðsla

Friðlýsing

Lundey í Kollafirði var friðlýst sem friðland þann 8. júní 2021. Markmiðið með friðlýsingu Lundeyjar er að stuðla að vernd líffræðilegrar fjölbreytni með því að vernda mikilvægt fuglasvæði í nágrenni Reykjavíkur auk sérstæðs gróðurlendis. Einnig er markmiðið að vernda lífríki í fjöru og á grunnsævi, lífríki á hafsbotni og hafsbotninn sjálfan.