Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Kerlingarfjöll

Kerlingarfjöll eru mikill fjallabálkur á miðhálendi Íslands, rétt sunnan Hofsjökuls

Fjöllin standa hátt upp úr annars nokkuð sléttum og víðáttumiklum Hrunamannaafrétti og setja mikinn svip á landið þegar ekið er yfir Kjöl. Öræfin í kringum fjöllin eru almennt í 600-700 metra hæð yfir sjávarmáli á meðan hæstu tindar Kerlingarfjalla rísa snarbrattir upp í yfir 1400 metra hæð. Hæstur er Snækollur, 1488 metra hár. Fjallaklasinn í heild nær yfir um 140 ferkílómetra, en verndarsvæðið er 367 ferkílómetrar. Árnar Ásgarðsá og Kisa renna frá fjöllunum og skipta þeim upp í tvo hluta, Austur- og Vesturfjöll. Hæstu fjöllin á svæðinu eru í Austurfjöllum – Snækollur (1488 m), Fannborg (1458 m) og Loðmundur (1429 m). Vesturfjöll eru ívið lægri, en til þeirra teljast m.a. Höttur (1312 m), Mænir (1357 m) og Ögmundur (1357 m). 

Aðgengi & þjónusta

Friðlýsing

Sumarið 2020 voru Kerlingarfjöll friðlýst sem landslagsverndarsvæði. Markmið friðlýsingarinnar eru að vernda jarðminjar, landslag, óbyggðir og ásýnd svæðisins. Með friðlýsingunni er tryggt að ekki sé gengið á auðlindir verndarsvæðisins og að nýting innan þess spilli ekki jarðminjum, landslagi eða ásýnd. Annað markmið friðlýsingarinnar er að efla Kerlingarfjöll sem útivistarsvæði og stuðla að góðri umgengni og bættu aðgengi að svæðinu.