Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Kaldárhraun og Gjárnar

Kaldárhraun er heillegt og óraskað helluhraun á vinsælu útivistarsvæði við Helgafell.

Kaldárhraun er eitt síðasta dæmið um heillegt og óraskað helluhraun í landi Hafnarfjarðar og er fræðslu- og útivistargildi svæðisins metið hátt. Á svæðinu eru fornminjar sem tengjast selbúskap, m.a. gömul gata, Kaldárstígur.

Friðlýsing

Kaldárhraun og Gjárnar í Hafnarfirði voru friðlýst sem náttúruvætti árið 2009. Markmið með friðlýsingu Kaldárhrauns og Gjánna er að vernda hellu­hrauns­myndun og fagrar klettamyndanir í vestari hrauntröðinni frá hinni kunnu eldstöð Búrfelli.