Fræðsla
Hér er hægt er að lesa um tjarnaklukku á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar.
Friðlýsing
Hálsar í Djúpavogshreppi voru friðlýstir sem búsvæði tjarnaklukku árið 2011. Flatarmál svæðisins er 146 hektarar. Markmið friðlýsingarinnar er að stuðla að varðveislu og viðhaldi náttúrulegs ástands tjarnanna á Hálsum og styrkja verndun eina þekkta búsvæðis tjarnaklukku hér á landi ásamt öðru lífríki svæðisins. Ennfremur er það markmið friðlýsingarinnar að tryggja möguleika á rannsóknum á lífríki svæðisins með áherslu á og búsvæði tjarnaklukku sem hefur verið lítt raskað en rannsókna- og fræðslugildi svæðisins er mikið.
Við ákvörðun um friðlýsinguna var höfð hliðsjón af samningnum um verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu (Bern 1979), samanber Stjórnartíðindi C 17/1993, samningnum um líffræðilega fjölbreytni (Ríó de Janeiró 1992), samanber Stjórnartíðindi C 3/1995, evrópska áætlun um verndun hryggleysingja sem unnin var á grundvelli Bernarsamningsins (Nature and environment No. 145) og 2010 markmið Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.
Umsjón og rekstur svæðisins er í höndum Djúpavogshrepps samkvæmt samningi við Náttúruverndarstofnun.
