Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Dverghamrar

Dverghamrar eru einkar formfagrir stuðlabergshamrar myndaðir úr blágrýti og eru nokkuð stórstuðlaðir. Efst á stuðlunum er víða að sjá jarðmyndun sem kallast kubbaberg og gerir þá einkar sérstaka.

Aðgengi og upplýsingar

Deverghamrar eru staðsettir sunnan við þjóðveg 1 um 15 km austur af Kirkjubæjarklaustri. Frá bílastæði liggur stutt gönguleið í hring um náttúruvættið. Áningastaður er við bílastæðið.

Landverðir á vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs sinna eftirliti með svæðinu.

Fræðsla

Stuðlaberg myndast í við kólnunarferil ný runnins hrauns. Eftir að hafa storknað heldur hraunið áfram að kólna, við kólnun dregst bergið saman. Að endingu klofnar hraunið í stuðla, sem alla jafna eru fimm- eða sexhyrndir. Stuðlarnir eru ávallt hornréttir á kólnunarflöt, sem veldur því að þeir standa lóðréttir í hraunlögum. Ofarlega í hinu nýrunna hrauni hefur kólnunin orðið hraðari en í kjarna þess. Við hraðari kólnun myndast hið óreglulega kubbaberg sem má sjá ofan á formfögru stuðlunum. Við lok síðustu ísaldar var sjávarstaða við Ísland hærri og er talið að núverandi útlit hamranna hafi þá verið mótað af sjávarrofi.

Friðlýsing

Dverghamrar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1987. Stærð náttúruvættisins er 2,14 hektarar. Tilgangur friðlýsingarinnar er að varðveita jarðmyndanir og lífríki svæðisins í núverandi mynd. Samkvæmt skilgreiningu Alþjóða náttúruverndarsamtakanna IUCN fellur náttúruvættið í flokk III.