Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Borgir

Eftir að jökull hopaði í lok ísaldar, fyrir um 10000 árum, var Borgarholtið sker úti fyrir landi.

Borgarholt er hæð á Kársnesi sem tilheyrir Kópavogi. Í holtinu eru klettamyndanirnar Borgir, sem eru friðlýst náttúruvætti síðan 1981. Eftir að jökull hopaði í lok ísaldar, fyrir um 10000 árum, var Borgarholtið sker úti fyrir landi. Hafaldan skolaði burt smágrýti en skildi eftir lágbarða grágrýtis hnullunga sem einkenna holtið.

Friðlýsing

Öllum er skylt að ganga vel um hið friðlýsta svæði.

Stærð náttúruvættisins er 2,8 ha en umhverfis friðlýsta svæðið afmarkast svokallað jaðarsvæði og er stærð þess 1,3 ha.