Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Blábjörg

Blábjörg er sérkennilegur klettahamar í Berufirði sem sker sig úr umhverfinu þar sem hann er ólíkur öllu öðru bergi á svæðinu, bæði að lit og áferð. Klettahamarinn er úr flikrubergi sem myndaðist í miklu gjóskuflóði.

Aðgengi og upplýsingar

Blábjörg er staðsett norðan megin í Berufirði, skammt austan við bæinn Fagrahvamm. Bílastæði er við hringveginn og stígur þaðan niður í fjöruna. Blábjörg eru aðgengilegur staður til að skoða flikruberg enda vinsæll viðkomustaður ferðamanna.

Samningur er við eigendur jarðarinnar Fagrahvamms um umsjón með náttúruvættinu.

Fræðsla

Blábjörg eru hluti af sambræddu líparíttúfflagi eða flikrubergi, sem hefur verið kallað Berufjarðartúff (Berufjörður acid tuff). Í jarðlagastaflanum er það rétt ofan við svokallað Hólmatindstúff, sem er með surtarbrandi, en nokkuð neðan við bleikt túfflag kennt við Skessu. Berufjarðartúffið má rekja upp með fjöllunum til norðausturs og er til dæmis áberandi í Berunestindi. Það hefur ekki fundist sunnan Berufjarðar. Flikrubergið myndaðist í gjóskuflóði í líparítsprengigosi. Það er að mestu úr sambræddum líparítvikri, en basaltbergbrot finnast einnig. Steindin klórít hefur myndast við ummyndun bergsins og gefur því grænleitan blæ. 

Friðlýsing

Svæðið var friðlýst sem náttúruvætti 2012. Friðlýsta svæðið er 1,49 hektarar að stærð. Markmiðið með friðlýsingu Blábjarga sem náttúruvættis er að vernda sérstæðar jarðmyndanir sem hafa hátt fræðslu- og vísindagildi.