Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Árnahellir í Leitahrauni

Í Árnahelli eru einstæðar jarðmyndanir og er hann í flokki örfárra hella á jörðinni sem skarta jafn glæsilegum og ósnortnum hraunmyndunum.

Fræðsla

Árnahellir er um 150 metrar á lengd. Hellirinn liggur á um 20 m dýpi undir yfirborði, breidd hans er um 10 metrar og lágt er til lofts. Dropsteinar Árnahellis verða seint taldir en líkja má þeim við frumskóg. Lengstu dropsteinar í hellinum eru rúmur metri á lengd og er þvermál þeirra um 7 cm. Sumir dropsteinanna eru þaktir gifsi að hluta, allt að 15 mm þykku. Lengstu hraunstráin um 60 cm. Loftið í hellinum er nær allt þakið hraunstráum, 5-10 mm í þvermál. Framandi steintegundir hafa fundist í Árnahelli, meðal annars 2 cm langur grænblár steinn, ópall.

Friðlýsing

Árnahellir fannst 1985 og geymir hann jarðminjar sem eru taldar merkar á heimsvísu og var hann því friðlýstur sem náttúruvætti árið 2002. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda hellinn og einstæðar jarðmyndanir sem í hellinum eru. Stærð náttúruvættisins er 8 hektarar. Umferð um hellinn er eingöngu heimil með sérstöku leyfi Náttúruverndarstofnunar.