Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Síðasti dagur rjúpnaveiða á Norðvesturlandi og Vestfjörðum – 18. nóvember

Í dag, mánudaginn 18. nóvember, er síðasti dagur rjúpnaveiða á tveimur veiðisvæðum landsins: Norðvesturlandi og Vestfjörðum. Veiðitímabilinu á þessum svæðum lýkur á miðnætti. 

Tvær hvítar rjúpur sitja á steini

Landshlutaskipting veiðisvæða hefur valdið einhverjum ruglingi meðal veiðimanna, einkum mörkin á milli Norðvesturlands og Norðausturlands. Bent er á að mörkin liggja um miðjan Eyjafjörð. Það þýðir meðal annars að austanverður Tröllaskagi, þar á meðal Öxnadalsheiði, Dalvík og Siglufjörður, tilheyra Norðvesturlandi, ekki Norðausturlandi. 

Veiðimönnum er bent á að það er á þeirra ábyrgð að kynna sér mörk einstakra veiðisvæða áður en lagt er af stað. Hægt er að gera það með einföldum hætti í kortasjá

  • Opnið kortasjána í snjalltæki 
  • Veljið þekju fyrir veiðisvæði 
  • Virkið staðsetninguna (hnappur efst í hægra horni) 

Með þessum hætti má auðveldlega fylgjast með staðsetningu í rauntíma og sjá hvort maður sé innan markanna fyrir viðkomandi veiðisvæði. 

Fyrir þá sem nota staðsetningartæki eins og Garmin, er einnig hægt að sækja KLM-skrá með mörkum veiðisvæða með því að ýta hér.